Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 15. júní 2019 13:45
Oddur Stefánsson
Heimild: Football Italia 
Spalletti: Ég hef ekki fengið nein almennileg tilboð
Mynd: Getty Images
Luciano Spalletti fyrrum þjálfari Inter segir að hann hafi ekki fengið nein almennileg tilboð fyrir næsta tímabil.

„Það var minn heiður að þjálfa Inter" og viðurkennir að hann hafi ekki fengið nein almennileg tilboð fyrir komandi tímabil.

„Tímarnir hjá Inter eru mér mjög kærir þar sem ég var að reyna byggja liðið. Þetta er frábær klúbbur með frábæra stuðningsmenn."

Max Allegri ætlar sér að taka frí eftir að hann sagði skilið við Juventus og þegar Spalletti var spurður að því hvort hann myndi gera hið sama sagði hann á viðburði fyrir styrktaraðila.

„Ég veit það ekki, ég held að klúbbar hafi ekki hugsað mikið um mig."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner