Fotbolti.net
15.06.21 - 22:52
Victor Pálsson

2. deild: ÍR gerði jafntefli á Akranesi

2. deild: ÍR gerði jafntefli á Akranesi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

<b>Kári 1 - 1 ÍR</b>
1-0 Martin Montipo('15)
1-1 Arian Ari Morina('16)
Lið ÍR mistókst að komast í toppsætið í 2. deild karla í kvöld í viðureign við Kára í sjöundu umferð.

ÍR var tveimur stigum frá toppliði Reynis S. fyrir leikinn og hefði sigur komið þeim á toppinn.

Kári hefur lítið sýnt á þessu tímabili en liðið var með þrjú stig fyrir leikinn og án sigurs.

Jafntefli var þó niðurstaðan í Akraneshöllinni en bæði mörkin voru skoruð snemma í fyrri hálfleik.

Kári lyfti sér úr botnsætinu með jafntefli en ÍR er í því þriðja, einu stigi á eftir Reyni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.