Íslenska kvennalandsliðið mætir Írlandi í seinni vináttuleik liðanna klukkan 17:00 í dag.
Ísland vann fyrri leikinn á föstudag, 3-2, þar sem Agla María Albertsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir gerðu mörkin.
Seinni leikurinn fer einnig fram á Laugardalsvelli.
Leikur dagsins:
Vináttulandsleikir kvenna - Landslið
17:00 Ísland-Írland (Laugardalsvöllur)
Athugasemdir