Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 15. júní 2022 09:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Romano: Mane búinn að ná samkomulagi við Bayern
Mynd: EPA
Félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greindi frá því morgun að Sadio Mane, leikmaður Liverpool, væri búinn að ná samkomulagi við Bayern Munchen um kaup og kjör.

Mane vill fara frá Liverpool og þýsku meistararnir vilja fá hann í sínar raðir. Bayern hefur boðið tvisvar í leikmanninn en Liverpool hefur neitað báðum tilboðum.

Liverpool vill fá um 40 milljónir punda fyrir Mane en Bayern hefur ekki boðið nálægt því í leikmanninn.

Romano segir að Mane, sem er þrítugur, sé búinn að ná samkomulagi um þriggja ára samning og að tilboð frá Bayern sé væntanlegt.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner