Bayern München gæti gert óvænt tilboð í Rashford - Liverpool hafnaði fyrirspurn Bayern um Díaz og ætlar ekki að selja hann
   lau 15. júní 2024 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Tindastóll náði þriðja sætinu með sigri
Konráð Freyr innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.
Konráð Freyr innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll 2 - 0 RB
1-0 Dominic Louis Furness ('62)
2-0 Konráð Freyr Sigurðsson ('92)

Tindastóll og RB áttust við í eina leik dagsins í 4. deildinni og var staðan markalaus í leikhlé.

Heimamenn tóku forystuna á Sauðárkróki þegar Dominic Louis Furness skoraði á 62. mínútu leiksins.

Stólarnir héldu eins marks forystu allt þar til í uppbótartíma, þegar gestirnir úr Reykjanesbæ blésu til sóknar en opnuðu vörnina sína í leiðinni.

Konráð Freyr Sigurðsson nýtti sér það og tryggði sigur Tindastóls á 92. mínútu.

Tindastóll er í þriðja sæti eftir sigurinn, með 11 stig úr 6 umferðum. RB vermir botnsæti deildarinnar með 1 stig eftir 7 leiki.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner