15.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Shakhtar gæti spilað á Stamford Bridge í Meistaradeildinni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Úkraínska félagið Shakhtar Donetsk gæti spilað á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea, í Meistaradeildinni á komandi tímabili.
Viðræður eru í gangi en Shakhtar vill spila á heimavelli Chelsea þar sem hann tekur um 40 þúsund áhorfendur. Craven Cottage, heimavöllur Fulham, og Gtech Community Stadium, heimavöllur Brentford komu einnig til greina.

Um 32 þúsund Úkraínumenn búa í Lundúnum og um 100 þúsund víðsvegar um Bretlandseyjar. Shakhtar vonast til að geta spilað á Stamford Bridge til að fá sem flesta Úkraínumenn á leikina.
Shakhtar hefur ekki getað notað Donbas Arena sinn síðan Rússar réðust inn í Donetsk árið 2014. Lið hafur spilað deildarleiki í Kænugarði og Lviv, og Evrópuleiki í Þýskalandi, Slóveníu og Póllandi.