Fotbolti.net
15.09.18 - 16:28
Arnar Helgi Magnússon

Jói Kalli: Það er möguleiki að vinna deildina

Auglýsing
Jói Kalli: Það er möguleiki að vinna deildina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl þjálfari ÍA var að vonum sáttur eftir sigur sinna manna gegn Selfossi í dag. Með sigrinum tryggðu Skagamenn sæti sitt í Pepsi deildinni að ári.
„Þetta var frekar undarlegur leikur. Mér fannst við gera mikið meira en nóg til þess að vinna leikinn en auðvitað eru Selfyssingar með hörkulið líka. Á köflum bara þetta pínu skrítið og erfitt og mikið stress í lokinn þrátt fyrir að við værum með alla yfirburði á vellinum.\"

„Þeir ná þessu eina marki og stríða okkur aðeins í restina. Við sigldum þessu heim af fagmennsku og kláruðum þetta. Tryggðum okkar sæti í Pepsi sem var alltaf markmiðið.\"

Ein umferð er eftir af deildinni og Skagamenn geta enn unnið deildina.

„Það er því miður ekki í okkar höndum en við eigum einn leik eftir og það er möguleiki að vinna deildina. Við viljum gera það og enda þetta tímabil af krafti í síðasta leik heima á móti Þrótti.\"

Viðtalið við Jóhannes má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.