þri 15. september 2020 18:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ornstein: Tottenham reynir að fá Bale sem vill koma
Bale er mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum Tottenham.
Bale er mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum Tottenham.
Mynd: Getty Images
Tottenham er í viðræðum við Real Madrid um kaup á Sergio Reguilon, vinstri bakverðinum öfluga eins og fjallað var um fyrr í kvöld.

David Ornstein, blaðamaður hjá The Athletic greinir þá frá því að Tottenham sé einnig í viðræðum við Real um að fá Gareth Bale aftur til félagsins.

Tottenham seldi Bale á sínum tíma á metupphæð en Bale hefur ekki verið í náðinni hjá Real og vill á burt. Hinn 31 ára sóknarmaður er sagður viljugur fyrir því að fara til Tottenham sem á sérstakan stað í hjarta velska leikmannsins.

Manchester United er einnig sagt vera að skoða að fá Bale að láni. Ef það gengur ekki gæti United skoðað að fá Douglas Costa eða Ivan Perisic að láni. Aðalskotmarkið er hins vegar Jadon Sancho hjá Dortmund en óvíst er hvort það gangi upp.
Athugasemdir
banner
banner
banner