KF 2 - 1 Þór 2
0-1 Aðalgeir Axelsson
1-1 Elvar Máni Guðmundsson
2-1 Andi Andri Morina
0-1 Aðalgeir Axelsson
1-1 Elvar Máni Guðmundsson
2-1 Andi Andri Morina
KF mætti varaliði Þórs í Kjarnafæðismótinu í dag og úr varð áhugaverður slagur þar sem æskan var í fyrirrúmi.
KF, sem leikur í 2. deild, hafði betur með tveimur mörkum gegn einu og byrjar mótið af krafti.
Aðalgeir Axelsson kom Þór yfir með glæsilegu skoti í fjærhornið.
Elvar Máni Guðmundsson jafnaði fyrir KF og hefur það vakið athygli þar sem hann er aðeins 14 ára gamall, fæddur 2006.
Andi Andri Morina spilaði með KF í dag og gerði hann sigurmarkið eftir góða skyndisókn.
Athugasemdir