Man Utd íhugar að gera 40 milljóna punda tilboð í Delap - Liverpool tilbúið að bjóða Nunez upp í Isak - Tottenham horfir til stjóra Bournemouth
   sun 16. febrúar 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Marmoush: Verðlaun fyrir þá vinnu sem ég hef lagt á mig
Mynd: EPA
Omar Marmoush, leikmaður Man City, komst á blað hjá liðinu í gær með stæl.

Þessi 26 ára gamli egypti skoraði sín fyrstu mörk fyrir liðið í 4-0 sigri gegn Newcastle. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu.

"Eftir að hafa skorað þrennu fannst mér ég loksins vera mættur til Man City. Ég rifjaði upp alla erfiðu vinnuna og baráttuna sem ég gekk í gegnum til að komast til eins stærsta félags heims. Þessi þrenna er eins og verðlaun fyrir alla þá vinnu sem ég hef lagt á mig," sagði Marmoush.

Marmoush gekk til liðs við félagið frá Frankfurt fyrir 59 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner