Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 16. apríl 2021 17:30
Elvar Geir Magnússon
Rafael Marquez ráðinn í þjálfun hjá Barcelona
Rafael Marquez er að snúa aftur til Barcelona í starf sem þjálfari en Mexíkóinn var í sjö ár sem leikmaður hjá liðinu milli 2003 og 2010.

Hann spilaði 243 leiki, skoraði 12 mörk og vann 12 titla. Þar á meðal voru tveir Spánarmeistaratitla og tveir Meistaradeildartitlar.

Hann mun þjálfa efnilega leikmenn Börsunga í akademíu félagsins, La Masia.

Marquez er 42 ára og hefur starfað við þjálfun hjá Alcala í Madríd en það er nýr forseti Barcelona, Joan Laporta, sem sækir hann aftur til félagsins.

Marquez lék 147 landsleiki fyrir Mexíkó áður en hann lagði skóna á hilluna 2018.
Athugasemdir