Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 16. maí 2021 06:00
Victor Pálsson
Pulisic harðneitar að hann sé á förum
Mynd: Getty Images
Christian Pulisic harðneitar því að hann sé á förum frá Chelsea í sumar en sögusagnir hafa verið í gangi um að hann sé ósáttur.

Pulisic hefur ekki alltaf átt fast sæti í liði Chelsea á tímabilinu og þá einnig eftir komu Thomas Tuchel.

Bandaríkjamaðurinn er þó ekki að hugsa um að hreyfa sig til og nýtur þess að keppa um byrjunarliðssæti í London.

„Augljóslega er ég ánægður hérna, þessi tvö ár hafa verið frábær," sagði Pulisic við ESPN.

„Fólk efast alltaf um það og segir að ég sé ekki að spila og að ég vilji fara hingað eða þangað. Ég er alltaf til í áskorun."

„Ég elska samkeppnina. Ég elska stöðuna sem ég er í og nýt tímanns hér."
Athugasemdir
banner
banner
banner