Fotbolti.net
16.07.26 - 11:10
Kári Snorrason

Adam Páls í KA (Staðfest)

Skrifar undir samning út tímabilið.

Skrifar undir samning út tímabilið.

Canon

Mynd: KA

Adam Ægir Pálsson er genginn í raðir KA. Hann skrifar undir samning við félagið út tímabilið.

Félagaskiptaglugginn opnaði í dag og verður Adam til taks á sunnudaginn þegar KA heimsækir ÍBV.

Hann gengur til liðs við KA frá Val þar sem hann hefur verið í litlu hlutverki undanfarið.

Adam spilaði með Val framan af tímabilinu en kom ekkert við sögu í júní. Í júlí hefur hann ekki verið í hóp og hefur ekki æft með liðinu að undanförnu.

Hann er sóknarmaður sem hefur skorað þrjú mörk og lagt upp eitt til þessa á tímabilinu í átta byrjunarliðsleikjum.

Adam var keyptur í Val frá Víkingi fyrir tímabilið 2023 eftir að hafa spilað frábærlega með Keflavík á láni tímabilið á undan.

KA er í tíunda sæti Bestu deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Stór prófíll á leið í KA? - Bróðir fyrrum leikmanns liðsins
TENGT EFNI

Stór prófíll á leið í KA? - Bróðir fyrrum leikmanns liðsins


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.