16.08.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Orri Steinn á tíu manna lista transfermarkt

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Vefsíðan transfermarkt heldur uppi ýmissi tölfræði þegar kemur að fótbolta og birtir skemmtilegar samantektir og ýmsa lista.
Spænska deildin er farin af stað á undan öðrum deildum í Evrópu og mætir Orri Steinn Óskarsson til leiks með Real Sociedad í fyrstu umferð nýs deildartímabils næsta föstudagskvöld.
Transfermarkt útbjó topp tíu lista fyrir upphafsflaut deildartímabilsins í gær þar sem talin eru upp tíu bestu ungstirni deildarinnar sem leika ekki fyrir tvö stærstu félagsliðin - risaveldi Barcelona og Real Madrid.
Verðmætasta ungstirnið er Jon Martín, tvítugur miðvörður sem er samherji Orra Steins hjá Sociedad. Martín er metinn á 25 milljónir evra á vefsíðu transfermarkt og kemur Orri skammt á eftir, metinn á 20 milljónir.
Orri, sem fagnar 22 ára afmæli í lok ágúst, gerði flotta hluti með Sociedad á síðustu leiktíð þrátt fyrir meiðslavandræði og skoraði þrjú mörk í sex leikjum á undirbúningstímabilinu.
Orri Steinn er jafnframt næstelstur á listanum, aðeins fimm dögum yngri heldur en Chupe sem hjálpaði Málaga að fara upp um deild.
Topp tíu listinn:
1. Jon Martín (Real Sociedad)
2. Orri Steinn Óskarsson (Real Sociedad)
3. Chupe (Malaga)
4. Peio Canales (Athletic Bilbao)
5. Jorge Salinas (Racing Santander)
6. Yassir Zabiri (Racing Santander)
7. Gabriel Moscardo (Espanyol)
8. Carlos Macia (Villarreal)
9. Davinchi (Getafe)
10. Javi Morcillo (Elche)