„Ég er með Luke Shaw á allra síðasta séns á þessu tímabili. Ég gef honum eitt ár í viðbót en hannars verður að kaupa visntri bakvörð," sagði Jóhann Skúli Jónsson í hlaðvarpsþættinum enski boltinn í gær þar sem rætt var um Manchester United.
Shaw hefur fengið gagnrýni fyrir að vera ekki í nógu góðu formi undanfarin ár en hann hefur einnig verið mikið meiddur.
Shaw hefur fengið gagnrýni fyrir að vera ekki í nógu góðu formi undanfarin ár en hann hefur einnig verið mikið meiddur.
„Það er nóg fyrir mig að sjá mynd af honum í búningnum og þá get ég sagt hvort hann sé búinn að falla á sénsinum eða ekki," sagði Andri Geir Gunnarsson. „Gæinn getur hlaupið fullt og hlaupið hratt en ef þú getur ekki verið réttu meginn í fituprósentunni þegar þú ert í United þá máttu fá sparkið."
Jóhann Skúli bætti við. „Það er ekki tilviljun að hann sé alltaf að meiðast miðað við standið sem hann er í."
Hér að neðan má hlusta á þáttinn í heild sinni.
Athugasemdir