Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. október 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Hanna Kallmaier áfram í eyjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hanna Kallmaier mun leika með ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna á næstu leiktíð en hún hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en Hönnu þekkja flestir í Vestmannaeyjum en hún hefur verið lykilleikmaður í liði ÍBV síðustu tvö leiktímabil.

Hanna sem er 27 ára hefur ekki misst af einum einasta leik á þessum tveimur tímabilum og var fyrirliði liðsins á nýafstaðinni leiktíð. Hún lék átján leiki í Pepsi Max deildinni í sumar og skoraði tvö mörk, gegn Þór/KA og Breiðabliki.

Hanna var valin leikmaður tímabilsins í fyrra en hún er mikil fyrirmynd fyrir yngri leikmenn félagsins þar sem dugnaður og vinnusemi hennar inni á vellinum skína í gegn í hverjum leik að því er segir í tilkynningu félagsins.

Ian Jeffs tók við þjálfun ÍBV í sumar þegar Andri Ólafsso hætti en hætti að tímabilinu lauk. Félagið á enn eftir að ráða nýjan þjálfara.
Athugasemdir
banner
banner