Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 17. janúar 2023 22:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orðið langt síðan Klopp fann þessa tilfinningu
Mynd: EPA

Liverpool er komið áfram í enska bikarnum eftir 1-0 sigur á Wolves í kvöld en það var Harvey Elliott sem skoraði markið.


Liverpool hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni og gerði jafntefli í fyrri leik liðsins gegn Wolves í bikarnum í millitíðinni.

„Það er eins og það séu ár og aldir síðan við fundum þessa sigurtilfinningu og spiluðum vel. Við urðum að berjast mikið í lokin og höfðum góða stjórn á því oft á tíðum. Þetta er svarið sem við vildum fá," sagði Klopp.

„Harvey Elliott var góður, sérstaklega eftir að hafa fengið högg snemma leiks á ökklann. Hann barðist í gegnum það og markið var einstakt. Það voru nokkrir sem eiga skilið að vera maður leiksins. Góður fyrri hálfleikur, góðir kaflar í seinni og að lokum var mikil ástríða í að verjast skotunum."

Liverpool mætir Chelsea á Anfield um helgina í gríðarlega mikilvægum leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner