Fotbolti.net
17.03.20 - 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Milner birti í dag myndband af sér að klippa gras með skærum

James Milner.

James Milner.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er nóg að gera hjá James Milner, varafyrirliða Liverpool, um þessar mundir. Það er hlé á ensku úrvalsdeildinni vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og verður það hlé að minnsta kosti þangað til í byrjun næsta mánaðar.

Leikmenn hafa því ágætis frítíma eins og er. Margir hafa eytt frítímanum í að spila tölvuleiki eða horfa á Netflix. Milner fer hins vegar aðrar leiðir.
Á dögunum birti Milner þar sem hann var að skipta tepokum niður á ákveðna daga vikunnar.

Í dag birti hann svo annað myndband þar sem hann var að klippa gras með skærum, núna þegar tepokarnir voru klárir fyrir vikuna.

Sjón er sögu ríkari!

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.