17 ára fyrirliði í Evrópudeildinni: Mig hefur dreymt um þetta síðan ég var lítill krakki


Mynd: Vestri


Mynd: Vestri
Vestri tók á móti Qarabag í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar. Leikurinn endaði 3-0 fyrir Qarabag og 6-0 einvígið 6-0 samtals.
Hinn 17 ára Albert Ingi Jóhannsson var óvænt í byrjunarliði Vestra í leiknum og bar fyrirliðabandið um helminginn af seinni hálfleik leiksins. Fótbolti.net ræddi við Albert eftir leikinn.
„Þetta var bara geggjað, ég veit ekki hvað annað ég get sagt nema hvað það eru mikil forréttindi að fá að spila með þessum leikmönnum". Sagði Albert Ingi eftir sinn fyrsta Evrópuleik og annan byrjunarliðsleikinn sinn í sumar.
Varstu hissa að Badu setti þig í byrjunarliðið gegn Qarabag?
„Maður sá alveg þreytuna á liðinu eftir síðasta leik gegn Fylki. Þá datt mér alveg í hug að þetta myndi gerast. Hann var að spyrja hvort ég væri tilbúinn og ég sagði að ég væri alltaf tilbúinn þegar kallið kemur".
Albert spilaði í hjarta varnarinnar hjá Vestra í kvöld og fékk það hlutverk að dekka framherjann Zakaria Sawo sem skoraði mark og lagði upp 2 mörk. Hvernig var að spila á móti leikmanni eins og Sawo?
„Maður má ekki missa fókus í hálfa sekúndu annars hleypur hann inn fyrir og skorar, það þarf ekki meira en það. Þetta var alveg geggjað og maður fær að sjá hversu góður þú þarft að vera til að fara alla leið".
Elmar Atli Garðarsson fyrirliði Vestra fór af velli á 63 mínútu leiksins í kvöld og í kjölfarið fékk Albert fyrirliðabandið.
„Það kom mér á óvart, ég var aldrei að búast við þessu. Þetta var ekki planað, mig hefur dreymt um þetta síðan ég var lítill krakki að vera með bandið fyrir heimaklúbbinn".
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.




