Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. ágúst 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel smeykur við að missa Jorginho og Kante
Mynd: EPA

Thomas Tuchel knattspyrnustjóri Chelsea er smeykur við að missa miðjumennina Jorginho og N'Golo Kante á frjálsri sölu næsta sumar.


Chelsea setti samningsviðræður við miðjumennina í forgang fyrr í sumar en það náðist ekkert samkomulag og nú er tímabilið farið af stað.

Viðræður hafa því verið settar á bið og munu hefjast aftur í vetur þegar HM fer af stað í Katar. Kante fer þangað með franska landsliðinu en Jorginho verður í fríi.

„Ég vil ekki missa þá frítt næsta sumar eins og gerðist með Rudiger og Christensen," sagði Tuchel. „Þetta verður bara að koma í ljós."

Báðir miðjumennirnir eru fæddir 1991 og vill Chelsea helst ekki semja við þá til meira en tveggja ára. Þeir eiga aðeins eitt ár eftir hjá Chelsea.


Athugasemdir
banner
banner
banner