Fotbolti.net
17.08.26 - 20:22
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeildin: Fallbaráttan magnast - Ægir féll

Lengjudeildin: Fallbaráttan magnast - Ægir féll
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
Fjórum fyrstu leikjum kvöldsins er lokið í Lengjudeild karla og litu afar áhugaverð úrslit dagsins ljós.
Fallbaráttulið Völsungs og ÍR unnu heimaleiki sína gegn Vestra og Njarðvík. Þetta er sérstaklega slæmt fyrir Njarðvíkinga sem misstu hér af tækifæri til að bæta stöðu sína í toppbaráttu deildarinnar til muna.

ÍR tók á móti Njarðvík og skoraði Emil Nói Sigurhjartarson eina markið í fjörugum fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu góð tækifæri til að bæta við mörkum. Arnleifur Hjörleifsson jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks og héldu bæði lið áfram að fá færi í skemmtilegum og opnum slag.

Heimamenn sköpuðu þó bestu færin og stóðu uppi sem sigurvegarar þökk sé mörkum frá Guðjóni Mána Magnússyni og Bergvin Fannari Helgasyni, lokatölur 3-1. ÍR er með 22 stig eftir 19 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan Völsung sem situr í fallsæti þrátt fyrir 2-0 sigur gegn Vestra.

Staðan var markalaus fyrstu 80 mínúturnar á Húsavík. Heimamenn í liði Völsungs fengu besta færið í jöfnum fyrri hálfleik en gestirnir frá Ísafirði fengu frábær færi í seinni hálfleik sem fóru forgörðum.

Vestri var sterkari aðilinn þar til á lokakaflanum þegar heimamenn tóku völdin og náðu að setja boltann í netið í tvígang. Inigo Arruti skallaði hornspyrnu fyrst í netið á 80. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Elfar Árni Aðalsteinsson forystuna úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Þetta er þriðji sigurinn í röð hjá Völsungi sem hefur ennþá þrjár umferðir til að bjarga sér frá falli. Liðið er aðeins einu stigi á eftir Grindavík sem gerði markalaust jafntefli við Gróttu.

Það var lítið um færi í Grindavík þar sem var afar hvasst og boltinn mikið úr leik, svo hvorugu liði tókst að skora. Grótta siglir lygnan sjó um miðja deild en Grindavík á erfiðan lokakafla framundan.

Ægir féll að lokum úr Lengjudeildinni með stóru tapi á útivelli gegn Leikni R. í leik sem Axel Freyr Harðarson fór á kostum og skoraði þrennu.

Leiknir vann 6-1 og er fimm stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Ægir leikur í 2. deild næsta sumar.

ÍR 3 - 1 Njarðvík
1-0 Emil Nói Sigurhjartarson ('20 )
1-1 Arnleifur Hjörleifsson ('46 )
2-1 Guðjón Máni Magnússon ('60 )
3-1 Bergvin Fannar Helgason ('76 )

Lestu um leikinn



Völsungur 2 - 0 Vestri
1-0 Inigo Albizuri Arruti ('80 )
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('84 , víti)

Lestu um leikinn



Grindavík 0 - 0 Grótta

Lestu um leikinn



Leiknir R. 6 - 1 Ægir
1-0 Axel Freyr Harðarson ('10 )
2-0 Anton Fannar Kjartansson ('16 )
3-0 Axel Freyr Harðarson ('24 )
4-0 Kári Steinn Hlífarsson ('39 )
4-1 Harley Bryn Willard ('41 )
5-1 Axel Freyr Harðarson ('58 )
6-1 Axel Örn Kjartansson ('70 )

Lestu um leikinn
Lengjudeildin: Fallbaráttan magnast - Ægir féll
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin: Fallbaráttan magnast - Ægir féll
Canon

Mynd: Grindavík

Lengjudeildin: Fallbaráttan magnast - Ægir féll
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin: Fallbaráttan magnast - Ægir féll
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.