Fotbolti.net
17.09.22 - 15:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tadic slapp vel frá vopnuðum mönnum

Tadic slapp vel frá vopnuðum mönnum
Canon

Mynd: EPA

Dusan Tadic leikmaður Ajax tjáði sig um árás sem hann varð fyrir fyrr í þessum mánuði.

Hann kom að vopnuðum mönnum við heimilið sitt eftir að hafa verið með félaga sínum úti að borða.

„Ég var í jakkafötum og spariskóm en ég var hraðari, svo fóru þeir á vespur og náðu mér. Skyndilega var slagur, ég náði að koma þeim í sundur, kýldi aðal manninn en hinn náði hálstaki á mér,"

Atvikið átti sér stað rétt fyrir leik liðsins gegn Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni á þriðjudaginn en hann sagði engum frá þessu til þess að trufla ekki undirbúninginn fyrir leikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.