Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 17. október 2020 11:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spænsku risarnir fylgjast með Bruno - Pappírsvesen og menn í kulda
Powerade
Bruno Fernandes
Bruno Fernandes
Mynd: Getty Images
Mesut Özil.
Mesut Özil.
Mynd: Getty Images
Komið er að laugardagsslúðurpakkanum í boði Powerade. BBC tekur saman það helsta.



Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur sagt Mesut Özil (32) að hann hafi tvo mánuði til að sanna sig hjá félaginu. Özil hefur ekki byrjað leik síðan 7. mars. (Express)

Barcelona og Real Madrid fylgjast með Bruno Fernandes (26) miðjumanni Manchester United. (Sun)

Watford neitaði 25 milljóna punda tilboði Crystal Palace í Ismaila Sarr (22). (Mail)

Brendan Rodgers, stjóri Leiceser, segir Islam Slimani (32) enn í plönum sínum. Slimani hefur ekki spilað með Leicester síðan í janúar 2018. (Telegraph)

Rolando Aarons (24) var á leið til Huddersfield í gær frá Newcastle en pappírum var ekki skilað inn í tæka tíð. (Shields Gazette)

Claude Puel stjóri St Etienne segir að William Saliba (19) hafi viljað koma aftur að láni til félagsins frá Arsenal. (L'Equipe)

Abbie McManus (27) leikmaður kvennaliðs Manchester United grínast með það að pabbi sinn sé loksins mættur í treyju af sér eftir að hún hafi skipt yfir frá Manchester City. (Sun)
Athugasemdir
banner
banner
banner