Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   þri 17. desember 2024 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Orri leyfði hjartanu að ráða för - „Rómantík í því að spila fyrir uppeldisfélagið"
Lengjudeildin
Heldur tryggð við uppeldisfélagið.
Heldur tryggð við uppeldisfélagið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Freyr var ráðinn þjálfari Fylkis í haust.
Árni Freyr var ráðinn þjálfari Fylkis í haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil með Fylki fyrir utan tvö sumur með Hugin.
Orri hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil með Fylki fyrir utan tvö sumur með Hugin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Sveinn Segatta, miðvörður Fylkis, ákvað fyrr í þessum mánuði að halda tryggð við uppeldifélagið og skrifaði undir áframhaldandi samning i Árbæ. Hann var með lausan samning og var orðaður við önnur félög eftir að síðasta tímabili lauk.

Orri er miðvörður sem fæddur er 1996 og ræddi við Fótbolta.net um ákvörðunina að framlengja.

„Síðustu vikur hafa verið mjög krefjandi en jafnframt skemmtilegar. Ég tók mér bara góðan tíma í að taka ákvörðun um framtíðina og ég er líka hrikalega spenntur fyrir þessu verkefni sem við erum að fara í," segir Orri Sveinn.

„Aðdragandinn að undirskriftinni var frekar einfaldur, var í góðu sambandi við Björn Viðar í meistaraflokksráði og stjórn félagsins, ásamt því að spjalla við þjálfarana Árna og Kristó. Ég fékk nokkur símtöl frá öðrum félögum sem voru áhugaverð og skemmtileg og sýnir manni að maður er að gera eitthvað rétt."

„Þarna á maður heima"
Af hverju framlengir Orri við Fylki?

„Það eru tilfinningarnar sem fylgja því að spila fyrir uppeldisfélagið sitt sem spila stærsta hlutverkið, þetta skiptir mann svo miklu máli. Þetta var spurning um að leyfa hjartanu að ráða för og í lokin var það einföld ákvörðun. Það er rómantík í því að spila fyrir uppeldisfélagið sitt. Öll föðurfjölskyldan mín er úr Árbænum og þarna á maður heima."

Alls ekki nógu góðir á báðum endum
Fylkir féll úr Bestu deildinni í sumar, hvað vantaði upp á hjá liðinu í sumar?

„Þetta er bara alltaf sama klisjan þegar lið falla, við vorum alls ekki nógu góðir á báðum endum vallarins. Það komu leikir þar sem við náðum að sýna hvað við gátum en tókst ekki að halda stöðugleika í frammistöðu. Það er það sem skiptir lang mestu máli fyrir næsta tímabil, að ná að vera stöðugir og sýna okkar besta."

Miklu auðveldari ákvörðun eftir fund með þjálfurunum
Hvernig list þér á nýjan þjálfara og þá staðreynd að langstærsti hluti hópsins verður áfram?

„Mér líst mjög vel á Árna og Kristó, hrikalega spenntur fyrir því samstarfi. Eftir að ég tók fund með þeim fyrir ca. tveimur vikum varð ákvörðunin um að vera áfram miklu auðveldari, fótboltinn sem þeir vilja spila, áherslurnar þeirra og sýn á fótbolta eru mjög líkar því hvernig ég sé leikinn."

„Það að halda í þennan kjarna er lykilatriði fyrir félagið. Við erum mjög samheldinn hópur og ég held að þetta sé einn besti Fylkisklefi sem ég hef upplifað. Mjög góð blanda af karakterum sem mun án efa hjálpa okkur á næsta tímabili og fullt af efnilegum strákum,"
segir Orri.
Athugasemdir
banner
banner