West Ham hefur lagt fram 22,5 milljóna punda tilboð í Youssef En-Nesyri, framherja Sevilla, en The Athletic greinir frá þessu í dag.
West Ham er í leit að framherja til að fylla skarð Sebastien Haller sem fór til Ajax á dögunum.
Hinn 23 ára gamli En-Nesyri hefur skorað 18 mörk í 50 leikjum með Sevilla síðan hann kom til félagsins frá Leganes fyrir ári síðan.

Sevilla borgaði þá 18 milljónir punda fyrir En-Nesyri en tilboð West Ham hljóðar upp á 22,5 milljónir punda auk 4,5 milljóna punda greiðslu sem er árangurstengd.
Athugasemdir