Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fim 18. mars 2021 22:47
Victor Pálsson
Mynd: Markvörður Slavia illa farinn eftir brot Roofe - Takkarnir í ennið
Kemar Roofe.
Kemar Roofe.
Mynd: Getty Images
Kemar Roofe, leikmaður Rangers, var réttilega sendur af velli í kvöld er liðið mætti Slavia Prag í Evrópudeildinni.

Roofe fékk beint rautt spjald í seinni hálfleiknum en hann fór þá með takkana í höfuð markmanns Slavia á ansi groddaralegan hátt.

Rangers er úr leik eftir 2-0 tap í kvöld en liðið endaði leikinn tveimur mönnum færri.

Eftir leikinn var birt mynd af markverði Slavia sem er ansi illa farinn eftir að hafa fengið takka Roofe í ennið.

Ondrej Kolar er markvörður Slavia og fór að sjálfsögðu af velli eftir þetta brot.

Mynd af þessu má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner