Fotbolti.net
18.05.24 - 13:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Yfirgefur Brentford og gengur til liðs við Chelsea

Yfirgefur Brentford og gengur til liðs við Chelsea
Canon

Mynd: Brentford

Bernardo Cueva mun yfirgefa Brentford eftir tímabilið og ganga til liðs við Chelsea.

Cueva mun vera sérfræðingur Chelsea í föstum leikatriðum en það var greint frá því fyrr á þessu ári Chelsea hafi náð samkomulagi við hann.

Hann verður sá fyrsti til að gegna þessu stafi hjá Chelsea. Félagið mun þurfa að borga Brentford 750 þúsund pund fyrir þjónustu Cueva.

Hann var ráðinn til Brentford árið 2020. Hann hefur einnig unnið fyrir mexíkóska félagið Chivas og sem þjálfari í föstum leikatriðum hjá norska landsliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.