Fotbolti.net
18.07.18 - 21:24
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Þrándheimi
Í samstarfi við styrktaraðila

Eiður Aron: Vil segja hluti sem er ekki sniðugt að segja

Auglýsing
Úr leiknum í kvöld.

Úr leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Richard Sagen/Adresseavisen

„Þetta er grátlegt, maður er hundfúll,\" sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson varnarmaður Vals eftir 3-1 tap gegn Rosenborg í Meistaradeildinni í kvöld. Í stöðunni 2-1 var Valur áfram en fékk á sig víti í uppbótartíma.
„Þetta var aldrei víti, við vorum að fara áfram og tvær mínútur áfram en dómarinn var ekki klár í það. Þetta var voðalega skrítið dæmi. Ég vil segja hluti sem er ekki sniðugt að segja.\"

Dómarinn búlgarski dæmdi þrjú glórulaus víti í leiknum og Valur virtist vera að landa sigri þegar síðasti vítadómurinn féll.

„Það er alltaf erfitt að sofna eftir leiki og hvað þá eftir svona. Við erum tveimur mínútum frá því að mæta Celtic sem allir vilja gera, en það verður Andorra,\" sagði Eiður en viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.