Miðjumaðurinn Daníel Finns Matthíasson hefur skrifað undir nýjan samning við Leikni í Breiðholti út tímabilið 2021.
Þessi 19 ára leikmaður hefur leikið tíu leiki fyrir félagið í Inkasso-deildinni í sumar en Leiknismenn sitja í 6. sætinu. Hann er uppalinn hjá félaginu.
Þessi 19 ára leikmaður hefur leikið tíu leiki fyrir félagið í Inkasso-deildinni í sumar en Leiknismenn sitja í 6. sætinu. Hann er uppalinn hjá félaginu.
„Það var vel við hæfi að nýr samningur við hann hafi verið handsalaður á miðju Leiknisvallar í sólinni í dag," segir á heimasíðu Leiknis.
„Hlutverk þessa hæfileikaríka leikmanns í aðalliði Leiknis hefur vaxið vel og hann hefur leikið tíu leiki í sumar. Allt Leiknisfólk fagnar þessum nýja samningi Danna!"
📝 Bjart yfir Breiðholti! Danni Finns skrifar undir nýjan samning út 2021!🌞😍
— Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) July 18, 2019
Það var vel við hæfi að nýr samningur við þennan 19 ára hæfileikaríka leikmann hafi verið handsalaður á miðju Leiknisvallar í sólinni í dag. #StoltBreiðholts pic.twitter.com/ELR80iegOO
Athugasemdir