Fotbolti.net
18.08.22 - 15:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rakel Hönnu skráð á skýrslu sem varamarkvörður Blika

Rakel Hönnudóttir.

Rakel Hönnudóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fyrrum landsliðskonan Rakel Hönnudóttir er á skýrslu hjá Breiðabliki gegn Rosenborg í forkeppni Meistaradeildarinnar í dag.
Lestu um leikinn: Rosenborg 4 - 2 Breiðablik
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rakel er á skýrslu, en það hefur hún líka verið í deildinni hér heima í síðustu leikjum.

Það vekur athygli að hún er skráð á skýrslu sem varamarkvörður Blika. Rakel er fjölhæfur leikmaður en það er ekki staða sem hún hefur leyst mjög oft.

Telma Ívarsdóttir, markvörður Blika, er ekki með í dag vegna meiðsla en hún er samt sem áður skráð á skýrslu þar sem hún er með hópnum.

Eva Nichole Persson, sem er var fengin í sumarglugganum, er í marki Blika í dag. Ef hún meiðist í dag þá kemur Rakel inn í markið.

Sjá einnig:
Tekur Rakel fram skóna í sumar? - „Getur vel verið að hún kíki á æfingar með okkur"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.