Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 18. ágúst 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
U15 skoraði aftur fimm mörk gegn Færeyjum
Mynd: KSÍ
U15 landslið kvenna vann öruggan 5-2 sigur gegn Færeyjum, en leikið var á þjóðarleikvangi Færeyja í Þórshöfn.

Berglind Freyja Hlynsdóttir og Rakel Eva Bjarnadóttir (báðar í FH) skoruðu sitt hvort markið í fyrri hálfleik og var Ísland 2-0 yfir í hálfleik. Rakel Eva bætti svo öðru marki sínu, og þriðja marki Íslands, við í upphafi síðari hálfleiks áður en Færeyjar skoruðu tvö mörk á tveimur mínútum.

Ísland svaraði með tveimur mörkum frá Kötlu Guðmundsdóttur (Augnabliki) og Hrefnu Jónsdóttur (Álftanesi) og 5-2 sigur staðreynd.

Þetta var seinni vináttuleikur liðanna í Færeyjum en Ísland vann 5-1 sigur í fyrri leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner