Sævar ræðir leikmannamál KA - „Erfitt mál"

Dusan er búinn að vera hreint stórkostlegur fyrir okkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóan Símun gekk í raðir KA í sumarglugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingimar Stöle er efnilegur bakvörður.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Arnbro er unglingalandsliðsmarkvörður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dusan er búinn að vera hreint stórkostlegur fyrir okkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var tilkynnt að Harley Willard hefði framlengt samning sitt við KA, en eftir standa fjögur nöfn: Dusan Brkovic (1989), Ingimar Torbjörnsson Stöle (2004), Jóan Símun Edmundsson (1991) og Steinþór Freyr Þorsteinsson (1985).

Harley Willard framlengir við KA til 2025 (Staðfest)
„Mér finnst mjög ólíklegt að Jóan verði áfram, hann kom hingað til að koma sér af stað eftir meiðsli og vill skoða sín mál; taka stöðuna á því hvað honum býðst í janúarglugganum áður en hann svarar einhverju um hvort hann hafi áhuga á að koma aftur til Íslands."
„Við erum að ræða við Dusan, hann er líka með einhver önnur spil á borðinu sem hann er líka að skoða. Okkur finnst aðeins þurfa að hrista upp í hópnum hjá okkur, hvað sem það svo verður. Dusan er búinn að vera hreint stórkostlegur fyrir okkur, erfitt mál en við erum örlítið að vakna upp við það hjá okkur að liðið er orðið svolítið gamalt og við þurfum að huga að endurnýjun á því. Við erum að skoða málin með honum þessa stundina og á sama tíma er hann að skoða þá möguleika sem hann hefur."
Ingimar kom frá Viking í Noregi í vetur. „Við erum að skoða málin með honum núna, snýst um skólamál og annað fyrir hann líka. Hann var í fjarnámi frá skóla í Noregi og það er verið að fara yfir þessa hluti. Það skýrist vonandi á næstu dögum. Þetta snýst um að námið hans samræmist því að spila fótbolta á Íslandi."
Steinþór var samningsbundinn út tímabilið 2023 en var um mitt ár dæmdur í bann út árið og samningurinn við KA féll úr gildi við það. Steinþór er orðinn 38 ára gamall en gæti snúið aftur á nýju ári. Hann er orðaður við önnur félög á Norðurlandi.
Alex taki stöðuna hjá Breiðabliki
Alex Freyr Elísson gekk í raðir KA á láni frá Breiðabliki í sumarglugganum. Vill KA reyna að halda honum?
„Alex er samningsbundinn Breiðabliki og mig grunar að Alex vilji taka stöðuna á því hvar hann stendur gagnvart nýjum þjálfara þar. Hann tekur stöðuna með þeim og við kannski fylgjumst með því máli útundan okkur. Ég á ekki von á því að það skýrist neitt þar fyrr en að Blikarnir fara af stað eftir Evrópukeppni. Alex er meiddur núna og verður meiddur í einhvern tíma í viðbót."
Engar breytingar væntanlegar á markvarðateyminu
Guy Smit var orðaður við KA á dögunum. Verða breytingar á markvarðateyminu hjá KA?
„Nei. Við erum með fjóra markmenn á samningi hjá okkur. Stubbur (Steinþór Már Auðunsson) og Jaja (Kristijan Jajalo) eru báðir á samningi út næsta ár og svo erum við mjög spennandi strák í Ívari Arnbro sem við þurfum að koma nær liðinu okkar á næstu misserum. Í það minnsta út næsta ár erum við mjög vel settir. Við höfum ekkert verið í leit að neinum markmanni. Við erum ánægðir með þessa tvo sem við höfum og svo er Ívar farinn að banka á dyrnar líka," sagði Sævar.
Gætu fækkað þjálfurum í meistaraflokksteyminu

Staðfestir að Bói sé á förum frá KA - Ekki rætt við Atla Svein
Hallgrímur Jónasson greindi frá því að hans aðstoðarmaður, Hólmar Örn Rúnarsson, væri á leið til Keflavíkur. Er eitthvað að frétta af frekari breytingum af teyminu?
„Við erum bara að skoða þau mál, hvað breytingar verða. Við höfum staðið vel undanfarin ár, verið með stórt þjálfarateymi; 4-5 í teyminu og erum að velta fyrir okkur hvort við verðum með svipað 'setup' eða förum í færri þjálfara og þá aðeins öðruvísi starfsskyldur á bakvið það. Við höfum verið að reyna tengja þjálfarana í meistaraflokksteyminu líka við stráka í 2. og 3. flokki, til þess að búa til leikmenn fyrir meistaraflokkinn. Við erum aðeins að melta hvað við viljum sjá fyrir næstu 2-3 ár. Það eru að koma upp mjög spennandi strákar sem við þurfum að ákveða leið fyrir upp í meistaraflokkinn okkar."
Ræddi við Atla en hann er ekki á leið norður
Atli Sveinn Þórarinsson var orðaður við KA í haust og þá sem mögulegur aðstoðarþjálfari Hallgríms. Haddi hafði sjálfur ekki rætt við Atla þegar Fótbolti.net spurði hann í lok móts, en hefur Sævar eða einhver í KA rætt við hann?
„Ég ræddi við Atla Svein á leik KA og Fylkis í haust. Ég hleraði hann og þá kom í ljós að hann væri ekkert á leiðinni norður í það minnsta næstu 2-3 árin. Það fór ekkert lengra það," sagði Sævar að lokum.

Haddi: Þurfum að fara yngja upp

Jóan Símun gekk í raðir KA í sumarglugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingimar Stöle er efnilegur bakvörður.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Arnbro er unglingalandsliðsmarkvörður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




