Heimild: BBC
Xavi og Puyol framlengja einnig
Lionel Messi hefur gert nýjan samning við Barcelona sem mun halda honum hjá félaginu til ársins 2018.
Messi hefur skorað tvö mörk í síðustu átta byrjunarliðsleikjum sínum með Barcelona en hann er kominn með samtals 90 mörk á þessu ári.
Messi hefur skorað tvö mörk í síðustu átta byrjunarliðsleikjum sínum með Barcelona en hann er kominn með samtals 90 mörk á þessu ári.
Fyrri samningur Messi átti að renna út í júní 2016 en hann hefur nú verið verðlaunaður með nýjum samningi.
Hinn 34 ára gamli Carles Puyol skrifaði einnig undir nýjan samning sem gildir til ársins 2016 en fyrri samningur hans átti að renna út næsta sumar.
Xavi, sem er 32 ára, skrifaði líka undir samning til 2016 en hann var áður samningsbundinn til 2014.
Athugasemdir