Mikel Arteta stjóri Arsenal viðurkenndi eftir 2 - 2 jafnteflið við Aston Villa í gær að hann öfundaði Liverpool af breiddinni í leikmannahópnum.
Liverpool hafði fyrr um daginn átt í basli með Brentford en tvö mörk varamannsins Darwin Nunez í uppbótartíma tryggðu þeim 0 - 2 sigur.
Gabriel Martinelli og Kai Havertz komu Arsenal í 2-0 í leiknum í gær en Youri Tielemans og Ollie Watkins jönuðu metin með tveimur mörkum á átta mínútna kafla.
Liverpool setti Nunez, Harvey Elliot og Curtis Jones inná sem varamamenn en Arteta vildi bara gera eina skiptingu, setti Raheem Sterling inná síðustu átta mínúturnar.
„Það eru þessi augnablik í toppbaráttunni," sagði Arteta. „Liverpool tókst þetta, þeir gerðu breytingar og varamennirnir skiptu sköpum og tókst að breyta leiknum. Hjá okkur var það andstaðan þó við höfum fengið tvö mörk á okkur á stuttum kafla. Það var hætta á þessu því ég vissi hvernig liðið var, að við gætum dalað þegar liði á leikinnn því liðið er líkamlega búið á því."
Arteta var spurður hvort hann ætlar að reyna að fá liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar í janúar.
„Þegar þið sjáið frammistöðuna, þá veit ég ekki hvort það eru mörg lið að spila svona vel í deildinni. En þegar þið skoðið svo bekkinn okkar, þá er ljóst að það er skortur."
Athugasemdir