Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. mars 2020 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Willian tilbúinn til að klára tímabilið með Chelsea
Willian hefur skorað 59 mörk í 329 leikjum á tæpum sjö árum hjá Chelsea.
Willian hefur skorað 59 mörk í 329 leikjum á tæpum sjö árum hjá Chelsea.
Mynd: Getty Images
Brasilíski kantmaðurinn Willian er reiðubúinn til að klára tímabilið með Chelsea þó það dragist á langinn.

Samningur Willian við félagið rennur út 30. júní. Willian er langt frá því að vera eini leikmaðurinn í þessari stöðu en óljóst er hvernig samningsmál munu virka ef sumarið verður nýtt til að klára knattspyrnutímabilið.

Willian segist ekki ætla að krefjast þess að fara frítt frá félaginu fyrr en tímabilinu lýkur. Arsenal, Tottenham og Barcelona hafa áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir.

„Ég verð samningslaus í júlí en ef tímabilið fer aftur af stað þá held ég að það yrði ekkert mál fyrir mig að klára það með félaginu. Félagið hefur alltaf staðið með mér og nú ætla ég að standa með því," sagði Willian.

Hinn 31 árs gamli Willian var í samningsviðræðum við Chelsea en félagið vildi aðeins bjóða honum tveggja ára samning. Willian vill þriggja ára samning.
Athugasemdir
banner
banner
banner