Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 19. mars 2021 18:22
Elvar Geir Magnússon
Árni Vill í Breiðablik (Staðfest)
Árni er kominn aftur í Breiðablik.
Árni er kominn aftur í Breiðablik.
Mynd: blikar.is
Sóknarleikmaðurinn Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir uppeldisfélagsins Breiðabliks og gerir tveggja ára samning í Kópavoginum.

Árni, sem er 26 ára gamall, hefur undanfarin ár leikið sem atvinnumaður í Noregi, Svíþjóð, Póllandi og Úkraínu.

„Það þarf vart að taka það fram hve mikill hvalreki þetta er fyrir Blikaliðið. Með þessari viðbót kemur enn meiri ógnun í sóknarleik Blikaliðsins og eru þetta skýr skilaboð Blika að liðið ætli sér að keppa um titla í sumar," segir á blikar.is.

Árni lék á árunum 2011-2016 121 leik með meistaraflokki Breiðabliks og skoraði í þeim 54 mörk. Árni á að baki einn A landsleiki og 32 leiki með yngri landsliðum Íslands.

„Það er fagnaðarefni fyrir alla Blika að fá Árna Vilhjálmsson heim. Hann er frábær leikmaður og karakter sem mun hjálpa liðinu ómælt bæði innan vallar sem utan." segir Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks.

Komnir
Árni Vilhjálmsson frá Kolos Kovalivka
Davíð Örn Atlason frá Víkingi R.
Guðjón Pétur Lýðsson frá Stjörnunni (Var á láni)
Finnur Orri Margeirsson frá KR
Jason Daði Svanþórsson frá Aftureldingu

Farnir
Brynjólfur Andersen Willumsson til Kristiansund
Gunnleifur Gunnleifsson hættur
Karl Friðleifur Gunnarsson í Víking R. á láni

Samningslausir
Arnar Sveinn Geirsson
Athugasemdir
banner
banner
banner