Fotbolti.net
19.06.18 - 22:26
Hulda Mýrdal

Guðrún Karítas: Þú verður að spyrja þjálfarann að því!

Auglýsing
Guðrún Karítas: Þú verður að spyrja þjálfarann að því!
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Guðrún Karitas átti magnaða innkomu þegar Valur vann KR í kvöld 4-0. Valur var aðeins 1-0 yfir eftir 77 mínútur þegar Guðrún kom inná og leikurinn hafði verið tíðindalítill. Guðrún kom heldur betur með fjör í leikinn. Hún skoraði í sinni fyrstu snertingu sláin inn eftir að hafa verið mínútu inná. 4 mínútum síðar tók Guðrún aftur til sinna ráða og skoraði gullfallegt mark, skot fyrir utan teig í fjærhornið. Staðan allt í einu orðin 3-0 . Það var svo Elín Metta sem átti síðasta markið fyrir Val og lokaniðurstaða 4-0.
Guðrún kom inná með krafti í dag
\"Já ég ætlaði að sýna mig og hjálpa liðinu að vinna. Það náðist og við sýndum liðskraftinn og kláruðum leikinn.\"

Hvað hefur þú verið að brasa í pásunni, kemur funheit og setur tvö mörk og líf í leikinn?
\"Já, góðar æfingar og fleira. Við höfum æft vel í pásunni. Fengum reyndar helgarfrí en þá er bara að fara sjálfur í ræktina\".

En finnst Guðrúnu hún eigi ekki að byrja í þessu liði?
\"Þú verður að spyrja þjálfarann að því!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.