Fotbolti.net
19.07.22 - 03:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Holiday Inn Express, Crewe

Gunnhildur: Persónulegar tilfinningar settar til hliðar

Auglýsing
Gunnhildur Yrsa fylgist með stöðu mála.

Gunnhildur Yrsa fylgist með stöðu mála.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Það góða við þetta lið er að þær eru með hausinn rétt skrúfaðan á og við erum allar hungraðar að komast til Ástralíu og Nýja-Sjálands," sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, miðjumaður Íslands, eftir jafntefli gegn Frakklandi í gær.

Þetta var síðasti leikurinn á EM en Ísland er úr leik eftir að hafa gert jafntefli í öllum sínum leikjum í riðlinum.
„Við verðum svekktar í nokkra daga en við vitum hvað við þurfum að gera núna og að stefna á. Þetta er svekkjandi, hlutirnir féllu ekki með okkur í þessu móti."

„Svona er fótbolti og ástæðan fyrir því að þessi íþrótt er sú besta í heimi. Það getur allt gerst. Við lögðum allt í þetta og skildum allt eftir á vellinum. Við verðskulduðum meira. Við erum með breitt bak og verðum betri fyrir vikið."

Gunnhildur byrjaði á bekknum. Var hún pirruð með það?

„Maður hefur ekki tíma til að vera pirruð, þetta er stórmót. Ég vil alltaf spila, en liðið er mikilvægast. Maður verður að setja sínar persónulegu tilfinningar til hliðar og vera til staðar fyrir liðið. Ég treysti Steina 100 prósent."

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.