Fotbolti.net
19.08.19 - 20:45
Birna Rún Erlendsdóttir

Margrét Regína: Við ætluðum okkur miklu meira í þessum leik

Auglýsing
Margrét Regína er fyrirliði Aftureldingar

Margrét Regína er fyrirliði Aftureldingar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„ Bara svekkelsi, við ætuðum okkur miklu meira í þessum leik '' segir Margrét Regína Grétarsdóttir fyrirliði Aftureldingar eftir 2-0 tap á móti toppliði Þróttar í Inkasso deild kvenna í kvöld.
„Þetta var ekki alveg nógu góð varnarvinna kanski í fyrra markinu'' segir Regína þegar hún var spurð út í hvað klikkaði hjá þeim í kvöld. 



Margrét Regína tekur þó jákvæða punkta úr leiknum og sér stíganda í sínu liði. 



„Mér fannst algjörlega mikill stígandi í liðinu og við erum að vaxa sem lið og bara þó að við höfum tapað þessu tvö núll þá er margt jákvætt í þessum leik. '



Margrét Regína segir að Afturelding ætlar að reyna halda sér við liðin fyrir ofan þær. 



„Við ætlum að reyna halda okkur aðeins ofar og reyna kroppa í liðin þarna í þriðja og fjórða.''



Viðtalið í heild sinni má sjá hér í spilaranum að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.