Leicester tók á móti Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leicester hafði betur, 2-1 og skoraði Jamie Vardy annað af mörkum liðsins.
Kona Vardy, Rebekah, hefur mikið verið í umræðunni vegna uppljóstrunar Colleen Rooney en Rooney komst að því að Rebekah lak upplýsingum um hana í the Sun.
Kona Vardy, Rebekah, hefur mikið verið í umræðunni vegna uppljóstrunar Colleen Rooney en Rooney komst að því að Rebekah lak upplýsingum um hana í the Sun.
Stuðningsmenn Burnley stríddu Vardy með söng um þetta en stuðningsmenn kölluðu inn á "Jamie Vardy, your wife is a grass" eða á íslenskunni: „Jamie Vardy, konan þín er svikari."
Vardy fagnaði marki sínu með því að hlaupa að stuðningsmönnum Burnley og sýndi þeim að hann hefði verið sá sem átti síðasta hláturinn.
Athugasemdir