Stuðningsmenn Tottenham voru gríðarlega svekktir eftir 3-3 jafntefli gegn West Ham í gær. Tottenham var 3-0 yfir eftir einungis 16 mínútur og þannig var staðan þangað til á 82. mínútu að Fabio Balbuena minnkaði muninn.
Davinson Sanchez skoraði sjálfsmark skömmu síðar og í viðbótartíma skoraði Manuel Lanzini ótrúlegt jöfnunarmark með skoti í slána og inn af löngu færi. Grátlegt jafntefli fyrir Tottenham.
Davinson Sanchez skoraði sjálfsmark skömmu síðar og í viðbótartíma skoraði Manuel Lanzini ótrúlegt jöfnunarmark með skoti í slána og inn af löngu færi. Grátlegt jafntefli fyrir Tottenham.
Hér að neðan má sjá tvo stuðningsmenn Tottenham sem voru í beinni útsendingu á netinu á meðan á leik stóð. Ótrúleg gleði þeirra átti eftir að breytast í pirring í lokin.
Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, birti myndband af sér á Twitter þegar Tottenham var með gott forskot í byrjun leiks.
Hjammi, sem fagnar afmæli sínu í dag, var ekki eins hress að leik loknum eins og sjá má hér að neðan.
I will never understand why football fans film themselves during games. But on occasions like today, I am so glad some do. pic.twitter.com/dYn1yjy72J
— Ben Winston (@benwinston) October 18, 2020
Fékk ca 100 svona skilaboð frá miklum spekingum þegar Mourinho var ráðinn. pic.twitter.com/BCEabAQuBr
— Hjálmar Örn Jóhannsson (@hjammi) October 18, 2020
😡😡😡😡😡 pic.twitter.com/l2s6021Zhq
— Hjálmar Örn Jóhannsson (@hjammi) October 18, 2020
Athugasemdir