Íslenska U20 ára landsliðið mætir Englandi í vináttuleik á Adams Park í Wycombe klukkan 19:00 en byrjunarliðin eru mætt.
Elías Rafn Ólafsson er í marki Íslands, en hann hefur verið að gera góða hluti með Aarhus Fremad á láni frá Midtjyllandog þá er Finnur Tómas Pálmason, leikmaður KR í vörninni.
Arnar Þór Viðarsson er þjálfari U20 ára landsliðsins.
Leikurinn er í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net en hægt er að lesa textalýsinguna með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Leikur Englands og Íslands - Bein textalýsing
Byrjunarlið Íslands: Elías Rafn Ólafsson (M), Hjalti Sigurðsson, Torfi Tímoteus Gunnarsson, Finnur Tómas Pálmason, Davíð Ingvarsson, Alex Þór Hauksson, Daníel Hafsteinsson, Kolbeinn Þórðarson, Kolbeinn Birgir Finnsson, Valdimar Þór Ingimundarson, Brynjólfur Darri Willumsson.
Athugasemdir