Luis Enrique mun í dag taka við sem landsliðsþjálfari Spánar af Robert Moreno á nýjan leik.
Enrique hætti sem þjálfari Spánverja í júní síðastliðnum eftir að níu ára dóttir hans greindist með krabbamein. Hún lést í ágúst síðastliðnum.
Enrique hætti sem þjálfari Spánverja í júní síðastliðnum eftir að níu ára dóttir hans greindist með krabbamein. Hún lést í ágúst síðastliðnum.
Aðstoðarmaður hans Moreno tók við liðinu og stýrði Spánverjum til sigurs í sínum riðli í undankeppni EM.
Spánverjar unnu fjóra af sex leikjum undir stjórn Moreno en í gærkvöldi burstaði liðið Rúmeníu 5-0.
Moreno brast í grát inn í klefa eftir leik þegar hann heyrði fréttirnar með Enrique en hann ræddi ekkert við fjölmiðla eftir leikinn. Óvíst er hvort hann muni halda áfram sem aðstoðarmaður Enrique eða ekki en það verður tilkynnt á fréttamannafundi í hádeginu.
Athugasemdir