Fotbolti.net
20.02.20 - 10:29
Magnús Már Einarsson

Gummi Hilmars liðsstjóri í æfingaferð FH - Fetar í fótspor föður síns

Guðmundur Hilmarsson.

Guðmundur Hilmarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Guðmundur Hilmarsson, fyrrum íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, er á leið með FH í æfingaferð til Florida í dag en hann mun leysa þar af sem liðsstjóri.

Guðmundur er fyrrum leikmaður FH en þegar hann spilaði með liðinu á sínum tíma var faðir hans Hilmar Arnórsson liðsstjóri en Hilmar var liðsstjóri hjá liðinu í um það bil tuttugu ár.

Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var einnig liðsfélagi Guðmundar hjá Fimleikafélaginu á sínum tíma.

Ólafur Guðmundsson, liðsstjóri FH, kemst ekki með í ferðina til Florida og Guðmundur leysir hann af hólmi.
„Ég er nú bara að hlaupa í skarðið í þetta eina verkefni. Fyrir mig uppalinn FH-inginn og leikmann félagsins til fjölda ára er þetta skemmtilegt og það munu örugglega rifjast upp atvik frá því í gamla daga þegar ég fór í æfingaferðir með Fimleikafélaginu," sagði Guðmundur við Fótbolta.net í dag.

„Er búinnn að lifa í hrærast í boltanum í gegnum ferilinn sem leikmaður, þjálfari og síðan íþróttafréttamaður til fjölda ára en nú fær að maður kynnast öðrum hlutum. Þetta verður bara gaman og gefandi," sagði Guðmundur léttur í bragði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.