Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
mánudagur 20. apríl
Úrvalsdeildin
Crystal Palace - West Ham - 19:00
Serie A
Lecce - Fiorentina - 18:45
mán 20.apr 2026 13:00 Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 6. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjötta sæti er Vestri.

Vestri fagnar marki á síðasta tímabili.
Vestri fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daniel Badu er nýr þjálfari Vestra.
Daniel Badu er nýr þjálfari Vestra.
Mynd/Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Elmar Atli er lykilmaður innan sem utan vallar.
Elmar Atli er lykilmaður innan sem utan vallar.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Balde er mættur aftur í Vestra.
Balde er mættur aftur í Vestra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórður Gunnar er kominn heim.
Þórður Gunnar er kominn heim.
Mynd/Vestri
Pape Abou Cisse kom en fór svo aftur.
Pape Abou Cisse kom en fór svo aftur.
Mynd/Vestri
Gunnar Jónas er öflugur leikmaður.
Gunnar Jónas er öflugur leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Pétur Bjarnason.
Sóknarmaðurinn Pétur Bjarnason.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sergine Modou Fall er öflugur.
Sergine Modou Fall er öflugur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir Vestri í sumar?
Hvað gerir Vestri í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Vestri, 155 stig
7. Grindavík, 110 stig
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig

6. Vestri
Vestri mætir aftur til leiks í Lengjudeildinni eftir tveggja ára veru í Bestu deildinni, og það er ákveðin sérkennileg staða sem liðið er í. Síðasta tímabil var í senn stórkostlegt og sárt, bikarsigurinn lifir lengi í minningunni eftir ógleymanlegan sigur á Val á Laugardalsvelli, en eftir þann leik virtist allt detta úr skorðum og liðið féll á endanum eftir erfiðan seinni hluta tímabilsins. Núna hefst nýr kafli. Hópurinn hefur tekið miklum breytingum og nýr þjálfari stýrir liðinu, sem gerir það að verkum að erfitt er að lesa nákvæmlega hvar Vestri stendur. Á sama tíma er liðið í þeirri óvenjulegu stöðu að vera í Lengjudeildinni en samt að fara að taka þátt í Evrópukeppni, sem mun setja aukið álag á hópinn og krefjast breiddar. Spurningin er hvort Vestri geti nýtt reynsluna úr efstu deild og bikarævintýrinu til að byggja upp nýtt lið sem er tilbúið að berjast um að fara aftur upp. Að komast aftur á Laugardalsvöll í gegnum umspil er alls ekki óraunhæfur draumur en það mun ráðast af því hversu hratt nýtt lið nær að smella saman og læra af sveiflunum sem einkenndu síðasta tímabil.

Þjálfarinn: Daniel Badu er nú tekinn við liðinu en hann spilaði með og þjálfaði Hörð á Ísafirði síðasta sumar, en félagið er venslalið Vestra. Hörður leikur í 5. deildinni og endaði í 5. sæti í A-riðlinum þar síðasta sumar. Badu, sem er 39 ára Englendingur, þekkir mjög vel til hjá Vestra, var alls tíu tímabil hjá félaginu sem leikmaður - fyrst hjá BÍ/Bolungarvík og svo Vestra. Hann kom svo inn í þjálfarateymi liðsins 2023 þegar Davíð Smári Lamude tók við liðinu. Badu var aðstoðarmaður Davíðs þegar Vestri fór upp í efstu deild. Hann kom svo inn í þjálfarateymi liðsins tvisvar tímabilið 2024 þegar Davíð tók út leikbönn. Það er sterkt fyrir Badu að Jón Þór Hauksson, fyrrum þjálfari og Vestra, mun aðstoða hann í sumar.

Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sokkur á mig sem ég tek glaður
„Evrópudeildar-Vestramenn eru eins og alltaf með gríðarlegar breytingar á liðinu milli ára. Núna er Danny Badu tekinn við og Jón Þór honum til halds og trausts í einhvers konar hlutverki sem ég þekki ekki hvað verður mikið og stórt dag fyrir dag, en það er þó frábært að hafa Jón Þór í öllum leikjum, þar er reynslubanki sem er hægt að leita í."

„Rótið á leikmannahópnum hræðir mig smá, fengu svakalegan prófíl í vetur sem er svo farinn aftur, þekktar stærðir horfið á braut og sumar af þeim orðið eftir í Bestu deildinni sem segir til um gæði þeirra - eins og Jeppe Pedersen og Diego Montiel. Þá má ekki gleyma skarðinu sem Njarðvíkurbræðurnir Guy Smit, Eiður Aron og Davíð Smári skilja eftir sig hjá þessu Vestraliði."

„Ég gæti séð Vestra ströggla svolítið í sumar, að minnsta kosti ekki ná þeim árangri sem þeir vilja enda veit ég að Sammi með sinn drifkraft og metnað yrði ekkert sáttur með 6. sætið, en ég sé þá eiginlega ekki koma sér í playoffs, það yrði þá allavega sokkur á mig sem ég tek glaður!"


Lykilmenn: Elmar Atli Garðarsson og Ibrahima Balde
Elmar Atli er hjartað og sálið í Vestraliðinu. Eins og komið hefur fram í þessari grein þá er yfirleitt mikið rót á leikmannahópi félagsins milli ára en Elmar Atl er alltaf þarna. Hann er fyrirliðinn og mun drífa liðið áfram innan sem utan vallar. Það voru svo stór tíðindi núna stuttu fyrir mót þegar Ibrahima Balde sneri aftur í Vestra eftir að hafa spilað með Þór síðasta sumar. Hann var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni og skoraði þar að auki fjögur mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarnum er Þór komst upp í Bestu deildina. Það kom upp ágreiningur hjá Balde og Þór á undirbúningstímabilinu um hvar hann ætti að spila á vellinum. Hann hafði spilað sem fremsti maður á undirbúningstímabilinu og var hann ekki hrifinn af því. Núna er hann mættur aftur í Vestra og verður gaman að fylgjast með honum þar.

Gaman að fylgjast með: Þórður Gunnar Hafþórsson
Þórður Gunnar er kominn aftur heim í Vestra eftir að hafa spilað með Aftureldingu og Fylki síðustu sex tímabil. Þórður Gunnar er lunkinn leikmaður með mikinn hraða sem þarf að skila mörkum og stoðsendingum fyrir uppeldisfélagið sitt í Lengjudeildinni í sumar.

Komnir:
Ibrahima Balde frá Þór
Þórður Gunnar Hafþórsson frá Aftureldingu
Marvin Darri Steinarsson frá Gróttu
Edson frá Brasilíu
Imran Mehanovic frá Danmörku
Jacob Stensson frá Svíþjóð
Konstantin Cheshmedjiev frá Norður-Makedóníu
Chriss-Albin Alexander Mörfelt frá Svíþjóð
Breki Þór Hermannsson á láni frá ÍA (var á láni í Grindavík)

Farnir:
Diego Montiel í KA
Jeppe Pedersen í KA
Guy Smit í Njarðvík
Morten Ohlsen Hansen til Færeyja
Anton Kralj til Keflavíkur
Eiður Aron Sigurbjörnsson í Njarðvík
Ágúst Eðvald Hlynsson í Þór
Gustav Kjeldsen í Stjörnuna
Arnór Borg Guðjohnsen í FH (var á láni)
Vladimir Tufegdzic
Benjamin Schubert til Skive

Samningslausir:
Silas Songani
Matias Niemela (var láni hjá Grindavík)

Komnir og farnir:
Pape Abou Cisse kom frá Katar en fór í lok febrúar



Fyrstu þrír leikir Vestra:
25. apríl, Vestri - Grindavík (Kerecisvöllurinn)
2. maí, Fylkir - Vestri (tekk VÖLLURINN)
9. maí, Vestri - HK (Kerecisvöllurinn)
banner