Fotbolti.net
20.05.16 - 21:36
Arnar Helgi Magnússon

Kristján Guðmunds: Þetta voru hörkuátök

Auglýsing
Kristján Guðmunds: Þetta voru hörkuátök
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Leiknir vann baráttusigur á Selfyssingum í Inkassodeildinni í kvöld. Leiknum lauk með 0-1 sigri gestanna. Kristján Guðmundsson var kampakátur eftir leikinn í kvöld. Leiknir með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.
„Við byrjuðum leikinn mjög vel, ég var mjög sáttur við fyrstu 20-25 mínúturnar. Við fengum 2-3 færi og vorum að gera það sem við ætluðum að gera. Við hefðum viljað skora fyrr og svo bæta þessu við sem við gerðum. Varnar- og sóknarleikurinn fínn í fyrri hálfleik.\"

Mikill hiti var í leiknum og menn tókust vel á.

„Þetta voru hörkuátök, við gerðum okkur grein fyrir því, þess vegna var mikilvægt að byrja vel og vera í sama ákafa og Selfossliðið, það er mikill ákafi í þeirra leik og við þurftum að vera jafn ákafir og þeir.\"

Elvar Páll var stálheppinn að fá ekki rautt spjald í seinni hálfleik eftir að hafa rifið Gutierrez niður með hálstaki. Kristján var ósáttur við þá hegðun.

„Ég var mjög óánægður með hans hegðun. Það má alveg segja það að hann hafi verið heppinn.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.