Fotbolti.net
20.10.19 - 18:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Katar: Fyrsta tap Al Arabi í fyrsta leik Birkis

Katar: Fyrsta tap Al Arabi í fyrsta leik Birkis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Al Arabi í fyrsta sinn er liðið mætti Al-Gharafa í úrvalsdeildinni í Katar.
Birkir gerði á dögunum þriggja mánaða samning við lærisveina Heimis Hallgrímssonar í Al Arabi. Hann kemur inn í liðið fyrir Aron Einar Gunnarsson sem er meiddur.

Birkir, sem hefur fengið númerið 67 hjá Al-Arabi, var í byrjunarliðinu í dag og lék allan leikinn. Hann fékk ekki draumabyrjun því Al Arabi tapaði leiknum 1-0.

Al-Gharafa komst yfir snemma í seinni hálfleiknum og það dugði til sigurs.

Al Arabi er í fjórða sæti með 13 stig eftir sex leik; fjórir sigrar, eitt jafntefli og eitt tap.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.