Brynjar Gestsson var ráðinn þjálfari hjá Þrótti Vogum á dögunum en hann er þegar byrjaður að móta liðið. Sjö leikmenn eru nú þegar farnir frá félaginu.
Guðmundur Marteinn Hannesson, einn af lykilmönnum liðsins, lagði skóna á hilluna eftir tímabilið en sex leikmenn til viðbótar hafa sagt skilið við félagið.
Það eru þeir Ólafur Hrannar Kristjánsson, Pape Mamadou Faye, Miroslaw Babic, Nemanja Ratkovic, Lassana Drame og Alexandranne Alexis.
Ekki er ákveðið hvort Gilles Mbang Ondo verður áfram hjá félaginu en hann skoraði 9 mörk í 2. deildinni í sumar.
Þá er einnig óráðið hvort Ivaylo Yanachkov, markvörður liðsins, verði áfram.
Á næstu dögum kynnir félagið aðstoðarþjálfara og styrkjarþjálfara fyrir meistaraflokk en liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar í sumar.
Athugasemdir