Fotbolti.net
20.11.20 - 12:15
Magnús Már Einarsson

Klopp ekki reiður þó Salah hafi dansað grímulaus í brúðkaupi

Salah í baráttunni.

Salah í baráttunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Mohamed Salah, sóknarmaður Liverpool, kemur aftur til Englands með einkaflugvél í dag eftir að hafa farið í landsliðsverkefni með Egyptum.

Salah er ennþá með kórónuveiruna en hann greindist í verkefninu með Egyptum. Talið er að Salah hafi smitast í brúðkaupi hjá bróður sínum en á myndbandi sést hann dansa grímulaus með fjölda manns.

Klopp virðist ekki vera reiður út í Salah þó að hann hafi boðið smithættu heim í brúðkaupinu.
„Mo kemur til baka í dag. Honum líður vel og er með engin einkenni. Við viljum ekkert segja opinberlega um hvaða hluti ég tala um við leikmenn," sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.

„Í sumar var ég í Þýskalandi og vinur minn færði afmælisveisluna út af mér. Ég ákvað að hætta við að mæta á síðustu stundu."

„Brúðkaup hjá bróður þínum er mjög sérstakt augnablik. Leikmenn mínir eru ótrúlega agaðir. Stundum gerast einhverjir hlutir og við erum núna í þessari stöðu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.