Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. janúar 2022 23:55
Victor Pálsson
Carlos á 'mikið eftir' hjá Sevilla
Mynd: EPA
Diego Carlos, leikmaður Sevilla, er ekki á förum frá félaginu samkvæmt spænskum miðlum en hann er sterklega orðaður við brottför.

Diario de Sevilla hefur það eftir Carlos að hann sé ekki að fara neitt og að hann eigi mikið eftir afrekað hjá félaginu.

„Ég á mikið eftir hjá þessu félagi," er haft eftir Carlos í miðlinum en það á hann að hafa sagt eftir leik við Valencia í vikunni.

Carlos er mikið orðaður við Newcastle á Englandi en hann hefur leikið með Sevilla frá árinu2019.

Newcastle er nú þegar búið að bjóða tvívegis í þennan öfluga leikmann en fengið höfnun í bæði skiptin.

Sevilla er í titilbaráttu á Spáni og er aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner